Leikskólinn Ylur
Í leikskólanum er skapað heimilislegt og traust umhverfi fyrir börnin, umhverfi sem hlífir þeim við ytra áreiti og síbylju. Notaðir eru hlýlegir og mildir litir, húsgögn, leikföng og annar búnaður eru úr náttúrulegum efnivið. Sérstaða leikskólans er það umhverfi sem hann er staddur í og er það óþrjótandi uppspretta fyrir leiki og efnivið sem notaður er við ýmis tækifæri.
Fyrirmyndir
Góðar fyrirmyndir eru börnunum nauðsynlegar og er það eitt megin hlutverk waldorf leikskólakennarans að vera iðinn og sinna daglegum störfum. Leikskólakennarinn býr til leikföng og nytjahluti, vökvar blóm, gróðursetur, tilreiðir mat og þess háttar, börnin ýmist leika hjá eða hjálpa til. Með því að hafa góða fyrirmynd tileinka þau sér þessi störf, öðlast hagnýta þekkingu og reynslu sem er grunnurinn að því að manneskjan nái að höndla sína daglegu tilveru sem fullorðin einstaklingur. Einnig upplifa börnin og skilja snemma nauðsyn þess að hlúa að umhverfinu, fá hagnýta kunnáttu og venjast því að meðhöndla mismunandi náttúruleg efni.
Regla og hrynjandi
Regla og hrynjandi eru nauðsynleg börnum til þess að geta vaxið örugg í sínu umhverfi. Í leikskólanum ríkir ákveðinn dags-, viku- og árshrynjandi. Morgunstund og sögustund skapa t.d. dagshrynjanda, vikan hefur sinn hrynjanda sem markast af bakstri á þriðjudögum, málun á miðvikudögum o.s.frv. og árshrynjandinn markast af hátíðum og öðrum árstíðabundnum störfum.
Frjáls leikur
Barnið tekur eftir því sem er í umhverfi þess, tekur það til sín og leikur eftir. Þetta er kjarni frjálsa leiksins og í leikskólanum er séð til þess að frjáls og sjálfsprottinn leikur sé þungamiðja dagsins og að gefin sé nægur tími fyrir samfelldan leik þar sem barnið er þátttakandi út frá sínum eigin forsendum; í þesskonar leik öðlast barnið sterkari sjálfsmynd og eflir svo dæmi séu tekin, félagsþroska, málþroska og skapandi hugsun.
Sagnahefðin
Ævintýri, söngvar og þulur eiga fastan sess í deginum. Sungnir eru söngvar, farið í leiki og sagðar þulur í morgunstundum og við ýmis tækifæri og í sögustund er farið með ævintýri og sögur sem gefa barninu tækifæri á að þroska með sér siðferðisvitund og öðlast samkennd. Einnig er skapandi starf áberandi, leitast er við að nota náttúrulegan efnivið og er barnið hvatt til upplifunar og einstaklingsbundinnar leiðar til að tjá sig.