Stefna skólans

Skólastefnan er byggð á hugmyndum og
kenningum Rudolf Steiners um þroska mannsins.

Skólastefnan

Í Waldorfskólanum Lækjarbotnum byggir skólastarfið á waldorfuppeldis- og kennslufræði þar sem mikil áhersla er lögð á að stuðla að alhliða þroska nemandans. Uppeldisfræðin hvílir á tveimur meginstoðum.  Annars vegar viðhorfum til mannsins og þeirri sýn á veru og eðli mannsins sem birtist í mannspeki Rudolf Steiner og hins vegar þeim hugmyndum sem hann setti fram um félagslega uppbyggingu samfélagsins.

Jöfn áhersla er lögð á vitsmunalegan, tilfinningalegan og líkamlegan þroska nemandans. Með vitsmunaþroska er m.a. átt við að kenna skapandi hugsun með tilliti til almennra þekkingar og fræðilegra þátta. Með tilfinningaþroska er m.a. átt við listrænan þroska, (fagurskyn) siðgæðis- og félagsþroska. Með líkamlegum þroska er m.a. átt við hreyfiþroska, skólun viljans og verklega leikni. Rík áhersla er á listræna og verklega nálgun í allri kennslu. Reynt er að samtvinna alla ofangreinda þætti þar sem mögulegt er og hafa viðfangsefni og kennsluna eins fjölbreytta og aðstæður bjóða upp á. Leitast er við að ná fram lifandi áhuga nemandans á viðfangsefnunum og koma til móts við þarfir og kröfur hans sem einstaklings.

Í Waldorfskólanum Lækjarbotnum byggir kennslan á framsögn og miðlun kennarans sem hefur tileinkað sér námsefnið, nemendur vinna síðan úr því og gera að sínu eigin. Mikil áhersla er á jákvætt viðhorf, sjálfstæð vinnubrögð og skapandi vinnu. Samkennsla er í 1.-2. bekk, 3.-4. bekk, 5.-6. bekk, 7.-8. bekk, og 9.-10. bekk.

Við teljum staðsetningu Waldorfskólans í Lækjarbotnum afgerandi góða og umhverfið skapar mikilvægan þátt í uppeldis starfsemi skólans. Nemendum er gefinn kostur á að komast í nána snertingu við náttúruna og að upplifa náttúruöflin í „blíðu og stríðu“ og lifa með hrynjanda árstíðanna. Við samtvinnum námsefnið við náttúruna og náttúruupplifanir hér í Lækjarbotnum. Ýmislegt í starfi skólans fer fram utandyra og má segja að hér hafi verið notuð „útikennslustofa“ frá upphafi.

Waldorfskólinn leggur mikla áherslu á félagsþroska og á það að skapa nálægð, annars vegar á milli nemenda og kennara, og hins vegar barnanna á milli, óháð aldri og þroska. Reynslan hefur sýnt okkur að í nútíma samfélagi er mikilvægt að hlúa að mannlegum samskiptum.

Við viljum að nemendur geti umgengist af virðingu og metið verðleika hvers annars. Eldri nemendur fá tækifæri til að sýna yngri nemendum umhyggju og virðingu, yngri nemendur upplifa dugnað og færni eldri nemenda sem skapar lotningu og eftirvæntingu. Við nýtum ýmis tækifæri, m.a. í tengslum við hátíðir, þar sem bekkirnir vinna saman og/eða gera góðverk, ásamt örum tækifærum sem miða að því að efla félagsvitund.