Skólaráð

Skólaráð

Í skólaráði sitja

  • Aðalheiður Jóhanna Ólafsdóttir, skólanefnd, skólastjóri
  • Björn Logi Sigurbjörnsson, skólanefnd, gjaldkeri
  • Elmar Sæmundsson, skólanefnd, kennir íslensku
  • Magnea Tómasdóttir, fulltrúi foreldrafélags
  • Guðmundur Már Einarsson, fulltrúi foreldra

Starfsáætlun skólaráðs

Í Waldorfskólanum Lækjarbotnum er starfrækt skólaráð skv. 8. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla.  Hlutverk ráðsins er fyrst og fremst samráðsvettvangur starfsmannaráðs og skólasamfélagsins um skólahald.

Skólaráðið tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu skólans í uppeldisfræði og stefnu menntamálaráðuneytis um skólahald.

Skólaráð Waldorfskólans fjallar um:

  • Skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar.
  • Fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda
  • Fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum.
  • Fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, starfsmannaráði, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti og öðrum aðilum og veitir umsögn sé þess óskað og aðstæður eru til.

Skólaráðið fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólk skólans.