Í byrjun árs 2024 fékk Waldorfskólinn í Lækjarbotnum aðild að Erasmus+, sem opnaði á þann möguleika á að sækja um styrki fyrir nám, fræðslu og samstarf á einfaldan hátt.
Skólinn sótti um styrk í flokknum „Nám og þjálfun“ til að efla fræðslu fyrir bæði kennara og nemendur sem hefur skapað tækifæri fyrir nemendur og kennara til faglegs og menningarlegs vaxtar.
Verkefni styrktímabilsins 2025:
Ágúst 2024
Endurmenntun kennara og starfsfólks til Osló
September 2025
Sérfræðingafræðsla frá Noregi
Godi Keller kennsluráðgjafi, sérfræðingur í Waldorffræðum og fyrirlesari frá Noregi.
Janúar 2025
Vettvangsheimsókn/Svíþjóð
Snorri Sigurðarson Hertervig heimsótti Eld och Lera og Idunskolan og kynnstu sér umhverfisvænan og náttúrulegan efnivið í smíða- og handverkskennslu ásamt fyrirkomulagi stuðningskennslu
Janúar 2025
Sérfræðingafræðsla frá Þýskalandi
Britta Schmith kennslu-, lestrar- og sérkennsluráðgjafi frá Haager Kreis, heimssamtökum Waldorfskóla kom í heimsókn í Lækjarbotna
Apríl 2025
Vettvangsheimsókn/Noregur
Ívar Brand Hollanders heimsótti Ålesund Steinerskólann kynnti sér bekkjarstjórnun hjá umsjónarbekkjum með blönduðum árgöngum og stjórnun lítilla Waldorfskóla.
Júni 2025
Finnland/Fræðslu- og menningartengslaferð
9.-10. bekkur fóru í ferð til Helsinki
Ágúst 2025
Endurmenntun kennara og starfsfólks í Osló