Fréttir, Hátíðir

Viðurkenning fyrir Drekaleikana

Árlega eru haldnir Drekaleikar í skólanum þar sem nemendur og starfsfólk breytist í þorpsbúa, engla og dreka.

Þorpsbúar byggja einföld hús, gera hlóðir, kveikja elda, baka pinnabrauð, tálga fagra hluti, jurtalita ullarband og ekki síst að leita að drekagullinu og berjast fyrir hið góða með samstarfi og hugrekki að leiðarljósi. Í lok vikunnar er hápunkturinn þar sem allir leggjast á eitt við að ráða niðurlögum drekavaldsins með því að slá hring í kringum drekana og syngja saman þannig að þeir umbreyttust í manneskjur, að því loknu er boðið upp á drekasúpu og drekablóð.

Skólinn hlaut í gær (15. maí 2024), viðurkenningu Kópsins sem er á vegum menntaráðs fyrir framúrskarandi verkefni í skóla- og frístundastarfi.