Í síðustu viku breyttust nemendur og starfsfólk skólans í þorpsbúa, engla og dreka þegar árlegur Drekaleikur fór fram í Furudal og allt gekk vonum framar þrátt fyrir þrálátt rigningaveður sem gerði einungis baráttuna við drekann enn dramatískari!
Í Drekadal var byggt lítið þorp þar sem þorpsbúar bökuðu pinnabrauð, kveiktu elda, tálguðu, jurtalituðu ull og sinntu ýmsum verkefnum. Hugrakkir riddarar héldu jafnframt inn í Drekaskóg í leit drekagullinu og börðust fyrir hinu góða með samstarf og hugrekki að leiðarljósi. Haustvindurinn setti svo sinn svip á leikana og gerði ævintýrið enn meira spennandi!
Hápunkturinn var þegar foreldrar og aðstandendur komu og tóku þátt í að ráða niðurlögum drekavaldsins. Með söng og samstöðu tókst loks að umbreyta drekunum í manneskjur. Að lokum var boðið upp á drekasúpu.
Drekaleikurinn er árleg hefð í skólanum sem sameinar leik, útiveru, sköpun og samvinnu. Árið 2024 hlaut Drekaleikurinn viðurkenning Kópsins fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf, sem er ánægjuleg viðurkenning á þessu sérstaka verkefni.


