Uncategorized

Jólabasar Waldorfskólans og Waldorfleikskólans Yls 14. nóvember 2026, kl. 12-17

Hinn árlegi jólabasar Waldorfskólans og Waldorfleikskólans Yls verður haldinn laugardaginn 14. nóvember á milli kl. 12-17 í fallegu umhverfi Lækjarbotna.

Undirbúningur basarsins stendur nú sem hæst en nemendur, foreldrar og starfsfólk beggja skóla taka höndum saman við að skapa einstaka upplifun fyrir gesti á þessum skemmtilega og hátíðlega degi.

Jólabasarinn hefur um árabil verið mikilvægasta fjáröflun skólans og jafnframt kær hefð í skólasamfélaginu. Frá stofnun Waldorfskólans í Lækjarbotnum hefur verið lögð rík áhersla á að nemendur og fjölskyldur þeirra taki þátt í skapandi handverksvinnu á haustmánuðum. Afrakstur þeirrar vinnu er síðan til sýnis og sölu á basarnum, þar sem finna má fjölbreytta og vandaða handverksmuni sem unnir eru af alúð og sköpunargleði.

Jólabasarinn er þó miklu meira en handverksmarkaður. Þar skapast einstakt tækifæri til að kynnast skólastarfinu í Lækjarbotnum, njóta samveru og upplifa þá sköpunargleði og samfélagsanda sem einkennir skólastarfið.

Gestum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá og má þar nefna brúðuleikhús, veiðitjörn, kertadýfingar, jurtaapótek, völundarhús og töfra. Einnig verða eldbakaðar pizzur, barnakaffihús og glæsilegt kaffihlaðborð á sínum stað. Að sjálfsögðu verður nóg af fallegu handverki til sölu.

Undirbúningur og framkvæmd jólabasarsins sameinar börn og fullorðna í hugmyndavinnu, handverki og sameiginlegum verkefnum. Þannig verður til sérstök stemning sem vex með hverjum deginum og margir bíða með eftirvæntingu eftir því að geta deilt henni með gestum.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Lækjarbotnum laugardaginn 14. nóvember og eiga saman notalegan dag fullan af jólagleði, sköpun og samveru!