Laugardaginn 30. maí verðum við með opið hús frá 12-14. Fólki býðst að spjalla við kennara og forvitnast um starfið og stefnuna.
Í nýja gróðurhúsinu okkar verða sumarblóm til sölu og vöfflukaffi þar sem áttundi og níundi bekkur eru að safna fyrir bekkjarferðum sínum sem farnar eru á hverri önn.
Tilvalið tækifæri til að kynnast töfrum Lækjarbotna og eiga notalegan dag rétt við bæjarmörkin.