Fréttir, Uncategorized

Vinnudagur 7. september

Næstkomandi laugardag er vinnudagur.  Allt skólasamfélagið, foreldrar, kennarar og börn hittast í Lækjarbotnum, hlúa að skólanum og skólasvæðinu, sinna uppbyggingu og viðhaldi. Verkefnin eru margskonar og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Gott er að koma klædd til vinnu eftir veðri og með vinnuhanska.

Mæting er klukkan 10:00 og unnið er til klukkan 16:00.