Nú stendur yfir þemadagar og lýkir þeim á föstudag. Á þemadögum haustannar er haldnir handverksdagar þar sem unnir eru ýmsir munir fyrir jólabasarinn. Allir nemendur skólans koma saman og skipta sér í hópa þvert á árganga. Markmið er meðal annars að efla samvinnu og styrkja félagsleg tengsl milli ólíkra aldurshópa. Verkefnin eru fjölbreytt og endurspegla áherslur skólans í efnis– og verkenavali.
Ýmsir fallegir munir verða til á þemadögunum og vandað er til verka. Afraksturinn verður síðan seldur á hinum árlega Jólabasar Waldorfskólans, sem haldinn verður laugardaginn 14. nóvember.
Þemadagarnir eru jafnframt dýrmætt tækifæri til að efla sköpunargleði og samkennd meðal nemenda. Við hlökkum til að deila afrakstrinum með ykkur á jólabasarinum!