Nú á miðvikudaginn, 11. nóvember, er Marteinsmessu fagnað víða um heim.
Marteinn var rómverskur hermaður sem síðar var tekinn í dýrlingatölu fyrir góðvild sína og hjálpsemi við fátæka. Þekkt er sagan af því þegar hann deildi skikkju sinni með betlara í kuldanum og gaf honum helming hennar. Með þeirri gjöf sýndi hann umhyggju, fórnfýsi og gjafmildi.
Á þessum árstíma höldum við luktarhátíð til að minnast Marteins og minna okkur á mikilvægi þess að lýsa upp myrkrið með hlýju og góðvild.
Sólin sendir okkur sína síðustu geisla áður en hún hverfur á bak við Selfjallið. Nemendur útbúa luktir til að taka á móti geislum sólarinnir, geislum sem við getum líka látið verða að innra ljós. Með luktum og söng veitum við hvert öðru birtu og yl í skammdeginu. Bekkirnir gleðja hver annan með smákökum og öðru góðgæti.
Í tilefni Marteinsmessu fara 5. til 10. bekkur í heimsókn á Handverkstæðið Ásgarð og halda þar í fallega hefð sem varð til þegar Ásgarður var nágranni okkar í Lækjarbotnum.
Ásgarður hóf starfsemi sína í Lækjarbotnum árið 1993 og hefur frá upphafi lagt áherslu á að efla styrkleika hvers einstaklings og skapa tækifæri til þroska á eigin forsendum. Á þeim tíma sem Ásgarður var nágranni okkar varð til sú fallega hefð að fagna Marteinsmessu saman með söng og smákökum sem við bökum sérstaklega af þessu tilefni.
Það gleður okkur að halda þessari hefð á lofti og eiga saman notalega stund í anda samkenndar, vináttu og samfélags.